Ungmennasamband Vestur – Húnvetninga (USVH) fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ föstudaginn 26. júlí síðastliðinn í húsnæði sundlaugarinnar á Hvammstanga. Það var Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ sem afhenti Reimari Marteinssyni formanni USVH viðurkenninguna. Stjórn USVH hefur öll komið að vinnunni í tengslum við þessa viðurkenningu ásamt Eygló Hrund Guðmundsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra sambandsins. Þess má þó geta að hluti vinnunar fyrir nafnbótina fór einnig fram á þingi héraðssambandsins árið 2017. Fór þar fram stefnumótunarvinna á svokölluðu World Café formi sem allir þingfulltrúar þess þings tóku þátt í. Niðurstöðurnar voru nýttar í stefnu USVH 2018-2022 sem staðfest var á þingi ári síðar. Birtist þessi stefna í nýrri Handbók USVH.

USVH er þriðja íþróttahéraðið sem fær þessa viðurkenningu frá ÍSÍ á eftir UMSE og UMSS. Á myndinni eru þau Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ og Reimar Marteinsson formaður USVH.

Myndina tók Ómar Eyjólfsson.