fjallaskokk_2015_bella_1950xFimmtudaginn 21.júlí verður gengið/skokkað/hlaupið frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Þetta er um 12 km leið og hækkun á milli 400-500 metrar. Gangan/skokkið/hlaupið er keppni þar sem gildir að vera fyrstur yfir fjallið, en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta eftir sínu höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða farið leiðina án þess að vera keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að vera með og hafa ánægju af.

Aldursskipting

15 ára og yngri, 16-49 ára og 50 ára og eldri, allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Einnig verða veittir verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig. Ræst verður í tveimur flokkum, göngufólk og trimmarar/keppnismenn.

Göngufólk

Göngufólk keppir ekki til verðlauna. Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 13:00 og lagt af stað með rútu kl. 13.15 og áætlaður komutími að Grund kl. 13.35. Ræst verður stundvíslega klukkan 13:45.

Trimmarar og keppnisfólk

Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 14:00, lagt af stað með rútu kl. 14.15, áætlaður komutími að Grund kl. 14.35. Ræst er stundvíslega kl. 14:45.

 
Góða skemmtun.
Þátttaka tilkynnist á netfangið usvh@usvh.is eða til skrifstofu USVH í sími 866-5390. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og í hvaða aldursflokk er verið að skrá. Þátttökugjald er kr. 1.500.