Húni 47. árgangur kominn út

Húni ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út, að þessu sinni 47. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði. Meðal annars efnis í ritinu nú eru: Grein eftir Svein Hallgrímsson um búið á Efri-Fitjum sem er i fremstu röð í sauðfjár- og hrossarækt. Grein um Benóný Benediktsson skákmann eftir Jón Torfason og ljóðskáld ritsins er Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir frá Ánastöðum á Vatnsnesi.

Ritnefnd annast útgáfu Húna í sjálfboðavinnu og allur ágóði af útgáfu hans rennur til íþrótta- og æskulýðsstarfs USVH.

Útgáfan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Húni er að berast áskrifendum þessa dagana, en hann er einnig seldur í lausasölu í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, Gallerí Bardúsa og Riishúsi á Borðeyri.

Eins er hægt að panta eintak með því að senda tölvupóst á netfangið usvh@usvh.is Hafi þér ekki borist þitt eintak er hægt að hafa samband í sama netfangi.

Rakel Ósk Ólafsdóttir formaður USVH veitir Húna viðtöku frá þeim Guðmundi Hauki Sigurðssyni, Þorbjörgu Ingu Ásbjarnardóttur, Jónínu Sigurðardóttur og Karli Friðrikssyni.

Deila frétt:

Tengdar fréttir