Rakel Ósk Ólafsdóttir kjörin nýr formaður USVH á 85. Héraðsþingi USVH

85. Héraðsþing USVH var haldið í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka og var það Ungmennafélagið Grettir sem sá um skipulagningu þess í ár. Fundarstjóri þingsins var Júlíus Guðni Antonsson og varo Sveinbjörg Rut Pétursdóttir formaður USVH og Anton Scheel Birgisson, framkvæmdastjóri USVH, fundarritarar þingsins.

Gestir þingsins voru þau Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ, Halla Margrét Jónsdóttir í stjórn UMFÍ og svæðisfulltrúi UMFÍ  á Norðurlandi vestra Halldór Lárusson.

Halla Margrét Jónsdóttir frá UMFÍ fer með sitt erindi.

Á þinginu voru lagðar til nokkrar breytingar á lögum USVH og reglugerð um styrktarsjóð USVH ásamt tillögum úr nefndum. Fundargerð þingsins má finna á heimasíðu USVH.

Kjörinn var formaður til tveggja ára og tekur Rakel Ósk Ólafsdóttir við af Sveinbjörgu Rut Pétursdóttir og þökkum við henni fyrir vel unnin störf.

Kjörinn var meðstjórnandi til tveggja ára og tekur Guðni Þór Skúlason við af Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttir og þökkum við henni fyrir vel unnin störf.

Rakel Ósk Ólafsdóttir nýr formaður USVH og Guðni Þór Skúlason nýr meðstjórnandi ásamt Halldóri Sigfússyni varaformanni og Ómari Eyjólfssyni gjaldkera. Á myndina vantar Guðnýju Helgu Björnsdóttir ritara USVH.

Kjörnir voru þrír varamenn, fyrsti varamaður til eins árs, Birgir Þór Þorbjörnsson, annar varamaður til eins árs, Katarina Borg og þriðji varamaður til eins árs, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.

Tveir skoðunarmenn til eins árs voru kosnar þær Kristín Ólafsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir. Einn skoðunarmaður til vara til eins árs var kosin Þórdís Helga Benediktsdóttir.

Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ veitti verðlaun fyrir Lífshlaupið sem féll í hlut Grunnskóla Húnaþings vestra og félags eldri borgara í Húnaþingi vestra.

Fanney Dögg Indriðadóttir veitir verðlaunum móttöku fyrir hönd Grunnskóla Húnaþings vestra.

Margrét Hanna Guðmundsdóttir og Elísabet Laufey Sigurðardóttir veita verðlaunum móttöku fyrir hönd félags eldri borgara.

 Halla Margrét Jónsdóttir í stjórn UMFÍ veitti starfsmerki UMFÍ sem féll í skaut þeirra Kathrin Smitt og Sesselju Kristínu Eggertsdóttur.

Kathrin Smitt veitir verðlaunum móttöku.

Sesselja Kristín Eggertsdóttir veitir verðlaunum móttöku.

Deila frétt:

Tengdar fréttir