Landsmót UMFÍ 50+ sameinar íþróttir, hreyfingu og gleði. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttaka er á eigin forsendum og ekki þarf að vera skráður í íþróttafélag.
Mótið fer fram 26. – 28. júní 2026. Aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík.
Komdu og taktu þátt í skemmtilegum og lifandi viðburði. Skráning fer fram hér: https://www.umfi.is/vidburdir/landsmot-umfi-50plus/