Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar úr Styrktarsjóði USVH 2019.
Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins má finna á heimasíðu USVH www.usvh.is. Athugið að 2. grein reglugerðar styrktarsjóðs var breytt á síðast Héraðsþingi og því eiga fleiri kost á styrk úr sjóðunum.
Umsóknir og önnur gögn skulu berast fyrir fimmtudaginn 31. október n.k. á skrifstofu USVH, Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga eða á usvh@usvh.is.