Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður miðvikudaginn 12. júní kl. 17:00
Þátttökugjald er 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri en 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Innifalið í verðinu er Kvennahlaupsbolurinn og verðlaunapeningur.
Við hvetjum konur á öllum aldri til að taka þátt, hver kona tekur þátt á sínum forsendum og allir ættu að geta fundið vegalengd við sitt hæfi. Það er því engin tímataka í hlaupinu heldur lögð áhersla á að hver komi í mark á sínum hraða, með bros á vör.
Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga kl. 17:00. Vegalengdir í boði: 2 km, 5 km og 10 km.
Hvetjum konur til að mæta tímanlega til að kaupa boli og taka þátt í upphitun sem Guðrún Helga Magnúsdóttir stýrir.
Hægt er að kaupa boli í forsölu á Pósthúsinu á Hvammstanga.
Frítt í sund fyrir þátttakendur að loknu hlaupi.