ÍSÍ Kvennahlaup Sjóvá fór fram laugardaginn 4. júní frá Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir þennan dag og bera myndirnar þess vitni. Rúmlega 35 konur og karlar tóku þátt í hlaupinu þetta árið og var stemningin góð meðal þátttakenda.