Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga varð Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á ársþingi sambandsins í vor og hefur stefnt að því að aðildarfélögin verði Fyrirmyndarfélög. Ungmennafélagið Kormákur á Hvammstanga stefnir að því að hljóta þá viðurkenningu á næstunni og fundaði Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri með stjórn og framkvæmdastjóra félagsins miðvikudaginn 16. október síðastliðinn og fór yfir vinnuna framundan. Félagið býður upp á fjölþættan íþróttaskóla fyrir iðkendur 6-9 ára fjórum sinnum í viku í samfellu við skólastarf. Félagið býður svo upp á íþróttaæfingar í mörgum íþróttagreinum fyrir aldurinn þar á eftir og uppúr s.s. í knattspyrnu, sundi, körfuknattleik, blaki, fimleikum, badminton og frjálsíþróttum.

Fyrirmyndarfélag og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ.