Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 23. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.
Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá
fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20%
afslátt af námskeiðsgjaldi.
Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 20. sept. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.
Slóð á skráningu á bæði stig í haustfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2019:
http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/