40. árgangur Húna ársrits Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út. Að vanda eru í ritinu frásagnir, greinar, ljóð og fréttir úr héraði auk þess sem látinna er minnst. Meðal efnis í ritinu er greinin „Fljótlega urðu mínir steinar stærri en hans”  viðtal við Sigurbjart Frímannsson og Sigrúnu Ólafsdóttur. Einnig er að finna frásögn Ármanns Pétursssonar frá dvöl sinni í Ástralíu. Útgáfa ritsins er styrkt af Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra. 

Húni er til sölu hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga og eins er hægt að fá Húna í áskrift með því að senda tölvupóst á usvh@usvh.is eða hringja í Eygló framkvæmdastjóra USVH í síma 844-0939.

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga