Search

Landsmót UMFÍ 50+ fer fram dagana 6. – 9. júní 2024 í Vogum á Vatnsleysuströnd í samstarfi við Ungmennafélagið Þrótt og Sveitarfélagið Voga. 

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.

Skráning fram fram hér: https://www.abler.io/shop/umfi/landsmot

USVH hvetur ykkur til þess að taka þátt!