Landsmót UMFÍ

SKRÁNING HAFIN Á  UNGLINGALANDSMÓTIÐ

Opið er fyrir skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Búast má við heilmikilli gleði á þessari fjölskyldu- og íþróttahátíð sem fram fer á hverju ári. Mótið er að þessu sinni haldið með Ungmennasambandi Borgarfjarðar og sveitarfélaginu Borgarbyggð.

Þátttökugjald er aðeins 9.400 krónur.

Með miða á mótið fylgir aðgangur að keppnisgreinum fyrir einn þátttakanda á aldrinum 11 – 18 ára, aðgangur að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna, en greiða þarf sérstaklega fyrir rafmagn og er það gert í gegnum skráningarkerfi mótsins. 

Athugið að verð fyrir rafmagn er 4.900 krónur til 29. júlí. Eftir þann tíma hækkar verðið í 6.900 krónur.   
Einnig er innifalið í miðaverðinu aðgangur að allri afþreyingu á mótinum, tónleikar á hverju kvöldi og aðgangur í sundlaugar í Borgarbyggð. 

Öll kvöldin verður tónlistardagskrá í stóru tjaldi á tjaldsvæðinu. Þar koma fram meðal annars: DJ Ísak & Ernir, Jón Jónsson, Sigga Ózk, hljómsveitin Meginstreymi, Björgvin úr IDOL og Júlí Heiðar.

Við skráningu velur þú fyrst þátttökugjald á Unglingalandsmót UMFÍ eftir því hvaða íþróttahéraði þú tilheyrir á landinu. Einnig er hægt að skrá sig án héraðs / félags. Athugið að sum íþróttahéruð niðurgreiða þátttökugjald að hluta eða öllu leyti fyrir þátttakendur á sínu svæði. Að þessu loknu velurðu greinar og hvort þið viljið aðgang að rafmagni.

Allt um Unglingalandsmótið hér

Deila frétt:

Tengdar fréttir