Íþróttamaður USVH 2023

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga óskar eftir ábendingum vegna tilnefningar til íþróttamanns USVH 2023. Þær skulu vera í samræmi við 1. grein reglugerðar um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein árið 2023.

Ábendingar ásamt greinagerð yfir árangur skal senda á netfangið usvh@usvh.is eigi síðar en mánudaginn 4. desember 2023.

Stjórn USVH