Húni, ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, er kominn út. Að þessu sinni 44. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði. Meðal annars efnis í ritinu nú eru: viðtal við Jóhannes Kristófersson frá Finnmörk, grein um Guðmund Gíslason, brúarsmið, og frásagnir eftir Þórhildi Ólafsdóttur, Ólaf Dýrmundsson og Auði Þórhallsdóttur.

Ritnefnd annast útgáfu Húna í sjálfboðavinnu og allur ágóði af útgáfu hans rennur til íþrótta- og æskulýssstarfs USVH.

Húni er óvenju efnismikill þetta árið eða alls um 256 síður. Útgáfan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Húni er að berast áskrifendum þessa dagana, en hann er einnig seldur í lausasölu í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, Löngufit á Laugarbakka og Riishúsi á Borðeyri. Eins er hægt að panta eintak eða skrá sig í áskrift með því að senda tölvupóst á netfangið usvh@usvh.is