Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga óskar eftir ábendingum frá íbúum Húnaþings vestra vegna tilnefningar til íþróttamanns USVH árið 2019, í samræmi við 1.grein reglugerðar um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein árið 2019.

Ábendingar skulu berast stjórn USVH fyrir þriðjudaginn 10.desember næstkomandi. Skila skal inn ábendingum ásamt greinagerð yfir árangur ársins í tölvupósti á netfangið usvh@usvh.is

Stjórn USVH.