Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga auglýsir eftir framkvæmdastjóra

USVH leitar að drífandi einstaklingi til að annast daglegan rekstur sambandsins. Þar á meðal er samskipti við aðildarfélögin, skipulagning viðburða ásamt öðrum þeim verkefnum sem USVH stendur fyrir eða tekur þátt í. Hlutastarf um 20%.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á hreyfingu og félagsstarfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Almenn tölvukunnátta
  • Geta unnið sveigjanlegan vinnutíma

Gert er ráð fyrir því að nýr framkvæmdastjóri geti hafið störf í ágúst 2019.

Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2019

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á usvh@usvh.is

Nánari upplýsingar veitir Reimar Marteinsson formaður USVH í síma 894-9939.