ithrottamadur_arsins_2015_281215-300x200

Kjöri Íþróttamanns ársins hjá USVH var lýst í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga í gærkveldi.  

Íþróttamaður USVH árið 2015 var kjörinn Ísólfur Líndal Þórisson hestaíþróttamaður frá Lækjamóti í Víðidal en hann hlaut 35 stig í kjörinu. Í öðru sæti var Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona hjá Umf. Val með 27 stig og í þriðja sæti var Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá umf. Hamar með 18 stig. Verðlaunahafar hlutu eignarbikara og Ísólfur farandbikar auk styrks frá Landsbankanum á Hvammstanga.

Ísólfur sem keppir fyrir Hestamannafélagið Þyt hefur á undanförnum árum skipað sér í raðir bestu hestamanna landsins. Árið 2015 var honum farsælt á keppnisbrautinni og keppti hann á mörgum mótum með frábærum árangri.