Opið fyrir umsóknir í Hvatasjóð

Búið er að opna fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis 20. maí 2025.

Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna.

Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Sótt er um á eftirfarandi slóð: https://app.smarterselect.com/programs/102989-Umfi

Í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar geta eftirtaldir aðilar innan ÍSÍ og UMFÍ sótt um:
1) íþróttahéruð 
2) íþróttafélög og/eða deildir þeirra 
3) sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög og/eða deildir félaga.

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis.

Deila frétt:

Tengdar fréttir