Íþróttamaður ársins

Stjórn Ungmenna- og íþróttasambands Vestur-Húnvetninga (USVH) óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2025. Tilnefningar skulu vera í samræmi við 1. grein reglugerðar um val á íþróttafólki sem hefur sýnt góðan árangur í sinni keppnisgrein á árinu.
Tilnefningum skal fylgja greinargerð þar sem árangur viðkomandi er útskýrður. Mikilvægt er að útskýra hvernig árangur viðkomandi sker sig úr og hvers vegna viðkomandi einstaklingur ætti að hljóta titilinn íþróttamaður ársins.

Ábendingar og greinargerðir skulu sendast á netfangið usvh@usvh.is eigi síðar en sunnudaginn 21. desember 2025.

Við hvetjum öll til að taka þátt og benda á íþróttafólk sem hefur skarað fram úr á þessu ári!

Stjórn USVH

Deila frétt:

Tengdar fréttir