Húni 46. árgangur kominn út

Húni ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út, að þessu sinni 46. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði. Meðal annars efnis í ritinu nú eru: viðtal Þórðar Skúlasonar við Gunnar Valgeir Sigurðsson fyrrverandi kaupfélagsstjóra, grein Inga Tryggvasonar um hjónin á Hrappsstöðum, viðtal Magnúsar Magnússonar á Skessuhorni við Arinbjörn á Brekkulæk og ljóð eftir Ragnar Ágústsson frá Svalbarði.

Ritnefnd annast útgáfu Húna í sjálfboðavinnu og allur ágóði af útgáfu hans rennur til íþrótta- og æskulýssstarfs USVH.

Útgáfan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Húni er að berast áskrifendum þessa dagana, en hann verður einnig seldur í lausasölu í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, Gallerí Bardúsa og Riishúsi á Borðeyri. Eins er hægt að panta eintak með því að senda tölvupóst á netfangið usvh@usvh.is

Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, formaður USVH, tekur á móti fyrsta eintaki af Húna. Með henni á myndinni úr ritnefnd Húna eru þau Karl Friðriksson, Jónína Sigurðardóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson. Á myndina vantar Þorbjörgu Ingu Ásbjarnardóttir úr ritnefnd.

Deila frétt:

Tengdar fréttir