Jóhann Magnússon, knapi í Hestamannafélaginu Þyt, hefur verið kjörinn Íþróttamaður USVH 2020. Jóhann náði góðum árangri í keppnum árið 2020. Hann er í liði í Meistaradeildinni og þess má geta að í sumar keppti hann í mótaröðinni Skeiðleikar, þar sem fljótustu skeiðhestar landsins etja kappi. Jóhann var tilnefndur sem skeiðknapi ársins af Landssambandi hestamannafélaga.

2. sæti: Helga Una Björnsdóttir, hestaíþróttakona
3. sæti: Dagbjört Dögg Karlsdóttir, körfuknattleikskona

Stjórn USVH óskar þessu flotta íþróttafólki innilega til hamingju með árangurinn á árinu 2020.