Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingunum af því. Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar sem vinna með börnum og ungmennum þurfa að þekkja mismunandi birtingarmyndir kynferðisofbeldis, eineltis og annars ofbeldis sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og vita hvernig bregðast eigi við þegar slíkt kemur upp. Tilgangurinn með aukinni þekkingu fólks á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir, er að reyna að koma í veg fyrir að slíkt komi upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi og gera börnum og ungmennum auðveldara með að fá úrlausn slíkra mála þegar þau koma upp.

Námskeiðið er fyrir alla sem starfa með börnum og ungmennum í íþrótta- og æskulýðsstarfi sem og aðra áhugasaman um barnaverndarmál.

Hér má finna slóðina á námskeiðið: https://namskeid.aev.is/courses/barnavernd