Lífshlaupsárið hefst þann 5. febrúar. Opnað hefur verið fyrir skráningu á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Á síðasta ári voru um 17 þúsund virkir þátttakendur í samtals um 500 skólum og vinnustöðum. Verkefnið miðar að því að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er. Lífhlaupið er góð byrjun á hreyfingu fyrir lífstíð.

Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu:
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur, 5. – 18. febrúar.
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur, 5. – 18. febrúar.Vinnustaðakeppni í þrjár vikur, 5. – 25. febrúar.
Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.

Nánari upplýsingar um skráningu er að finna á https://lifshlaupid.is/innskraning/?ReturnUrl=%2fdefault.aspx%3fpageid%3d485eeeb6-a8b0-11e5-9403-005056bc4d74