38. árgangur Húna ársrits Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út. Að vanda eru í ritinu frásagnir, greinar, ljóð og fréttir úr héraði auk þess sem látinna er minnst. Meðal efnis í ritinu er greinin „Staðarskáli er Ísland“ viðtal Georgs Jns Jónssonar við Báru Guðmundsdóttur á Stað og grein Ólafs Gríms Björnssonar fræðimanns um Stefán Jónsson lækni frá Hrísakoti. Útgáfa ritsins er styrkt af Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra.

Húni er til sölu hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga og eins er hægt að fá Húna í áskrift með því að senda tölvupóst á usvh@usvh.is eða hringja í Eygló framkvæmdastjóra USVH í síma 844-0939

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga