Húni 43. árgangur kominn út

Húni ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út, að þessu sinni 43. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði. Meðal annars efnis í ritinu nú eru: viðtal við Margréti Eddu Jónsdóttur Fjellheim „Er sennilega meiri Íslendingur eftir 50 ár í Noregi“, frásögn af fluttningi Fossselshússins til Hvammstanga, 50 ára saga Tónlistarskóla Húnaþings vestra og ljóð og stökur eftir Guðmund Guðmundsson frá Þorgrímsstöðum.

Ritnefnd annast útgáfu Húna í sjálfboðavinnu og allur ágóði af útgáfu hans rennur til íþrótta- og æskulýssstarfs USVH.

Húni er óvenju efnismikill þetta árið eða alls um 250 síður. Útgáfan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Húni er að berast áskrifendum þessa dagana, en hann er einnig seldur í lausasölu í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga og Riishúsi á Borðeyri. Eins er hægt að panta eintak með því að senda tölvupóst á netfangið usvh@usvh.is