Mánudaginn 15. júní síðastliðinn var 79. Héraðsþing USVH haldið í félagsheimilinu á Hvammstang.

Mæting á þingið var góð en alls mættu 23 einstaklinga á kjörbréfi af 26 frá Umf. Kormáki, Hestamannafélaginu Þyt, Umf Víði, Umf Gretti og Umf Hörpu. Þingforseti var Júlíus Guðni Antonsson.

Á þinginu var kosið um formann og meðstjórnanda í stjórn USVH til tveggja ára auk þriggja varamanna til eins árs auk skoðunarmanna.

Guðrún Helga Magnúsdóttir var kjörinn nýr formaður og tekur hún við af Reimari Marteinssyni. Pálmi Geir Ríkharðsson var kjörinn nýr meðstjórnandi og tekur hann við af Þóreyju Eddu. Guðrún Eik Skúladóttir var kjörin ný sem fyrsti varamaður, Reimar Marteinsson sem annar varamaður og Dagrún Barkardóttir ný þriðji varamaður. Ingibjörg Jónsdóttir og Kristín Ólafsdóttir voru kjörnar sem skoðunarmenn til 2 ára og Elín Jóna Rósenberg sem skoðunarmaður til vara í 1 árs.

Nokkuð var um lagabreytingar á þinginu en þar ber helst að nefna að 2. grein um val á íþróttamanni ársins hjá USVH hljómar nú þannig að;
Rétt til tilnefninga þarf einstaklingur að eiga lögheimili í Húnaþingi vestra eða stundar æfingar og keppir undir merkjum USVH eða aðildarfélaga þess og hafa náð 18 ára aldri. Þó er heimilt að tilnefna ungling sem keppir í flokki fullorðinna og er að ná það góðum árangri að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.

4. grein um val á íþróttamanni ársins hjá USVH hljómar nú þannig að; Íþróttamaður ársins fær í verðlaun farandgrip sem hann varðveitir í eitt ár. Farandgripurinn vinnst aldrei til eignar. Einnig fær hann áritaðan grip til eignar, til minja um heiðurinn.

Hægt er að skoða fundargerð þingsins á eftirfarandi vefslóð: http://usvh.is/skjol/


Auk þess sem að þingið hvetur Sveitafélagið Húnaþing vestra til að breyta reglugerð um frístundakort á þá leið að íbúar geti nýtt þau til íþrótta eða tómstundaiðkunnar til 18 ára aldurs hvar svo sem börnin eru í skóla.